25. aðlfundur KFR, haldinn 22. mars 2023

Fundur settur kl. 20:05 – Fundarstaður Hvolsskóli

  1. Ingvi Karl kosinn fundarstjóri. Sandra Sif kosin ritari fundarins.
  2. Starfsskýrsla stjórnar kynnt, Tinna les.
  3. Gunnar Aron, gjaldkeri, fer yfir endurskoðaða reikninga fyrir árið 2022.
  4. Starfsskýrsla stjórnar og ársreikningar KFR ,fyrir árið 2022, samþykktir samhljóða.
  5. Kynning á hækkun æfingagjalda. Tinna kynnir. Hækkun æfingagjalda samþykkt. Ábendingar komu með að pressa væri á að lágmarksæfingafjöld yrðu í öllum flokkum.
  6. Minnisblað – samtal á milli sveitarfélaga og íþróttafélaga í Rangárvallasýslu. Viljum við sameina öll íþróttafélögin? Kostir og gallar ræddir.
    KFR starfar nú þegar á sýsluvísu – spurning hvort Dímon, Hekla og Garpur sameinist fyrst? En þá spurning hvort við verðum útundan, sem eitt stakt félag.
    Kostir að sameina starfsmenn; formaður, styrktarþjálfari o.fl. Rætt um aðstöðu.
    Spurning hvort KFR ætti að ráða framkvæmdastjóra eða gera formannshlutverkið að starfi
    -setja þar upp starfshlutfall.
    KKR þarf að gera styrktarsamninga við fyrirtæki t.d. til 5 ára í senn.
    Er vilji fundarmanna til að fara af stað í einhverja sameiningarvinnu?
    Góð umræða bæði með og á móti sameiningu. Umræðum frestað, málið verður tekið aftur upp undir önnur mál.
  7. a) Allir í aðalstjórn gefa kost á sér áfram nema Guðmundur Úlfar. Jónas Örn Hreiðarsson gefur kost á sér í hans stað.
    b) Tinna gefur kost á sér til formanns. Ekki kom mótframboð.
    c) Kosning varamanna. Klara gefur kost á sér áfram. Tómas hættir sem varamaður. Ellert Geir kemur inn í hans stað sem formaður meistaraflokksráðs.
    d) Kosning skoðunarmanna reikninga. Berglind Hákonardóttir og Lárus Einarsson, núverandi skoðunarmenn, gefa kost á sér áfram.
    A. B. C. D. Samþykkt samhljóða.
  8. Önnur mál.
    • Aðstöðumál – tími aðgerða upprunninn hjá KFR til að setja í gang raunhæft plan um það hvernig á að koma boltanum af stað. KFR þarf að byrja að sækja styrki til mannvirkjasjóðs KSÍ.
    • Koma hönnun og plani af stað – hvert stefnum við, hvað ætlum við að framkvæma?
    • Spurning að athuga með Landsvirkjun og Landsnet með styrki – háspennulína sem á að fara að leggja í gegnum ytra og eystra. Stórt samfélagslegt verkefni sem við þurfum að hvetja fólk til að taka þátt í.
    • Tillaga til stjórnar til að skipa starfshóp til að fara lengra með màlið og koma af stað vinnu fyrir alvöru.
    • Aðalfundur KFR 2023 tekur vel í hugmyndir um samvinnu eða sameiningu íþróttafélaga í Rangárvallarsýslu og felur stjórn KFR að vinna málið áfram.
    • Kynnt fyrir fundarmönnum fyrirhuguð áform um uppsetningu á auglýsingaskiltum frá bilboard í ytra og eystra. Af þessu munu koma inn leigutekjur að fjárhæð 900.000kr. KFR er að semja við sveitafélögin um staðsetningu og leiguverð á lóð.
    • Stjórn hvött til að hafa æfingatöfluna sýnilegri. Uppfæra heimasíðu eða facebook síðu.
  9. Fundarslit – Fundarmönnum þakkað fyrir komuna.

Fundi slitið kl. 21:38.