1. flokkur: í þann flokk fara börn sem frá og með því almanaksári er þau verða 6 ára og fram til þess almanaksárs að þau
    verða 8 ára og að því meðtöldu.

Markmið í tækni- og leikfræðilegum atriðum 7. flokks
Tækni
Knattæfingar
Knattrak
Einfaldar leikbrellur
Sendingar innanfótar
Móttaka með il, innanfótar, utanfótar og læri.
Sköllun úr kyrrstöðu með léttum bolta.
Halda bolta á lofti.
Leikfræði
Leikir með fáa leikmenn í hverju liði með eða án markmanns.
Markskot
Helstu leikreglur og leikstöður
Einfaldur leikskilningur.
Boðið skal upp á þrjár æfingar yfir vetrartímann og tvær yfir sumartíma. Farið skal með
krakkana á mót eða spilaðir æfingaleikir eftir þörfum en helstu mót í karla flokki eru: Jólamót
og páskamót í Hveragerði, VÍS/TM mót, Skagamótið og Arionbanka mótið. Í kvenna flokki
eru Jólamót í Hveragerði, VÍS/TM mót, Símamótið og Arionbankamótið. Allt í samstarfi og
samvinnu við ÍBV. Stefnt skal að því að hafa eitthvað félagslegt fyrir jól.